Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir leikskólakennara við leikskóladeildina Barnaborg

Við leitum að kennara sem:

  • Hefur kennaramenntun og leyfisbréf á viðkomandi skólastigi
  • Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
  • Er lausnamiðaður
  • Er sveigjanlegur og með góða samskiptahæfni
  • Er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði
  • Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni
  • Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu
  • Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim

 

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra. Þingeyjarskóli hefur hafið innleiðingu á agastefnunni Jákvæður agi. Rík tónlistarhefð er við skólann.

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.

Nýlega flutti leikskóladeildin í nýtt og glæsilegt húsnæði og starfsaðstaða er til fyrirmyndar.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2020.

Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2020.

Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

 

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is