Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir leikskólakennara við leikskóladeildina Barnaborg.

Við leitum að kennara sem: 

  • Hefur kennaramenntun og leyfisbréf á viðkomandi skólastigi
  • Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu 
  • Er lausnamiðaður
  • Er sveigjanlegur og með góða samskiptahæfni 
  • Er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði 
  • Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni 
  • Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu 
  • Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim

 

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum.  Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra. Þingeyjarskóli hefur hafið innleiðingu á agastefnunni Jákvæður agi. Rík tónlistarhefð er við skólann. 

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.   

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð. 

Nýlega flutti leikskóladeildin í nýtt og glæsilegt húsnæði og starfsaðstaða er til fyrirmyndar.

Möguleiki er á húsnæði í sveitarfélaginu. 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. 

Staðan er laus frá og með 1. október 2019.

Umsóknarfrestur er til 10. sept.  

Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

 

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is