Þingeyjarskóli auglýsir stöðu íþróttakennara

Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftirfarandi stöðu lausa til umsóknar:

Stöðu íþróttakennara

Við leitum að kennara sem:

-          Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu

-          Hefur lausnamiðaða nálgun á viðfangsefnum

-          Er sveigjanlegur og með góða samskiptahæfni

-          Er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði

-          Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni

-          Vill taka þátt í teymisvinnu

-          Hefur reynslu af íþrótta- og sundkennslu

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur.  Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum.

Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans. Rík tónlistarhefð er við skólann.

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.  

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.

Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2020

Umsóknarfrestur er til 25. maí 2020

Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is