Þingeyjarskóli auglýsir eftir yfirmatráði við mötuneyti skólans á Hafralæk frá og með 1. ágúst 2021

Á starfsstöð Þingeyjarskóla á Hafralæk verða um 90 börn við leik og störf veturinn 2021-2022. Að jafnaði starfa um 35 starfsmenn með börnunum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Yfirmatráður ber ábyrgð á matseld, matseðlagerð, verkstjórn í eldhúsi, innkaupum, skipulagningu og framkvæmd starfsins í mötuneyti í samvinnu við skólastjórnendur.

Hæfniskröfur:

Góð þekking á matseld, næringu- og hollustufæði fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri

Hreinlæti og snyrtimennska skilyrði

Frumkvæði, sveigjanleiki og samstarfsvilji

Mikla hæfni í mannlegum samskiptum

Sjálfstæði í vinnubrögðum og stundvísi

Reynsla af rekstri mötuneyta æskileg

Hreint sakavottorð

Starfshlutfall er 100%, vinnutími er frá kl. 8:00 – 16:00

Umsóknarfrestur er til og með 10. júní n.k.

Hægt er að sækja um starfið á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri Þingeyjarskóla í síma 4643580 eða á netfanginu johannrunar@thingeyjarskoli.is