Þingeyjarskóli auglýsir eftir starfsmanni í blandað starf

Meðal viðfangsefna er stuðningur við nemendur með náms- og hegðunarvanda, umsjón með félagsmálum nemenda, ritarastörf og fleira sem skólastjóri kann að fela viðkomandi hverju sinni.

Þingeyjarskóli leitar að starfsmanni sem:

  • Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu 
  • Hefur reynslu af vinnu með börnum og unglingum
  • Er lausnamiðaður
  • Er sveigjanlegur og með góða samskiptahæfni 
  • Er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði 
  • Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni 
  • Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu 
  • Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim
  • Hefur gott vald á íslensku í ræðu og riti.

 

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum.  Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra. Þingeyjarskóli hefur hafið innleiðingu á agastefnunni Jákvæður agi. Rík tónlistarhefð er við skólann. 

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.   

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð. 

Staðan er laus frá og með 15. ágúst 2019 

Umsóknarfrestur er til 5. júlí 2019 

Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

 

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is