Þingeyjarskóli auglýsir eftir íþróttakennara og myndlistakennara
Þingeyjarskóli auglýsir eftir íþróttakennara í allt að 100% starf frá 1. ágúst 2026.
Þingeyjarskóli auglýsir eftir myndlistakennara í allt að 50% starf frá 1. ágúst 2026.
Við leitum að kennurum sem:
- Er umhugað um velferð barna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins.
- Hafa afburða góða samskiptahæfni og metnað til að takast á við fjölbreytt verkefni með nemendum.
- Hafa áhuga á skólaþróun og skapandi kennsluháttum.
- Eru jákvæðir og sveigjanlegir, sjálfstæðir í vinnubrögðum og sýna frumkvæði.
- Er samstarfsfúsir og lausnamiðaðir og tilbúnir að takast á við ný og spennandi verkefni í samstarfi og teymisvinnu.
- Eru með viðeigandi menntun eða menntun sem nýtist í starfi.
Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af rétt um 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum. Lögð er áhersla á mikla samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Þingeyjarskóli styðst við uppeldisstefnu Jákvæðs aga. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti og þá er rík tónlistarhefð við skólann. Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 1.06.2026 og skulu umsóknir berast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í síma 464 3580 / 8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is