Takk Birna og Kristrún í Krílabæ
Þingeyjarsveit vill færa Birnu Óskarsdóttur og Kristrúnu Kristjánsdóttur innilegar þakkir fyrir þeirra góðu störf í leikskólanum Krílabæ.
Birna Óskarsdóttir deildarstjóri hefur starfað í Krílabæ allt frá haustinu 2007 en lætur nú af störfum vegna aldurs. Hún hefur í gegnum árin sýnt einstaka fagmennsku í starfi, sinnt börnum og starfsfólki af alúð og faglegri nákvæmni. Börnin hafa notið leiðsagnar hennar í leik, list, tónlist og umhyggju sem hefur skilað sér í öruggu og jákvæðu umhverfi fyrir öll börn sem þar hafa dvalið.
Kristrún Kristjánsdóttir leikskólakennari hefur sinnt starfi sínum af kostgæfni, m.a. með fjölbreyttum og skemmtilegum íþróttastundum og útikennslu, en svæðið kringum Krílabæ býður upp á mikla möguleika í náttúruskoðun. Hún hefur verið jákvæð, lausnamiðuð og sýnt frumkvæði í starfi og hefur haft mikil áhrif á daglegt líf og vellíðan barnanna í leikskólanum. Kristrún heldur nú til annarra starfa eftir að hafa starfað hjá Þingeyjarsveit um árabil, en hún hóf störf í Litlulaugaskóla árið 2008.
Á dögunum færðu Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir sveitarstjóri og Ásta F. Flosadóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs þeim Birnu og Kristrúnu þakkir fyrir vel unnin störf.
Fyrir hönd sveitarstjórnar og íbúa Þingeyjarsveitar þökkum við Birnu og Kristrúnu þeirra mikilvægu störf í þágu yngstu íbúa sveitarfélagsins. Starf þeirra hefur haft jákvæð áhrif á uppbyggingu og gæði leikskólastarfs í Krílabæ. Við óskum þeim alls hins besta í komandi verkefnum.