Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs hefur hafið störf

Ingimar Ingimarsson hefur hafið störf sem sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Þingeyjarsveitar. 

Ingimar er skrúðgarðyrkjufræðingur frá LBHI með BA í opinberri stjórnsýslu frá Háskólanum á Bifröst. Hann hefur komið víða við í gegnum árinn og þekkir vel til verkefna sveitarfélaga m.a. í gegnum störf sín sem sveitarstjórnarmaður bæði fyrir Reykhólahrepp og Hafnarfjörð. Hann hefur starfað sem kennari, garðyrkjuverktaki og umhverfis- og garðyrkjustjóri Seltjarnarnesbæjar. Þá hefur hann einnig stýrt hóteli og setið í fjölda nefnda á vegum sveitarfélaga s.s. framkvæmdarráði, þjónustu og þróunarráði, nefndar um staðardagsrká 21 hjá Hafnarfjarðarbæ og skipulags-, hafnar- og byggingarnefnd Reykhólahrepps ofl.

Við bjóðum Ingimar velkominn til starfa hjá sveitarfélaginu.