Fara í efni

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

SVIÐSSTJÓRI FJÖLSKYLDUSVIÐS

 

Þingeyjarsveit leitar að öflugum leiðtoga í stöðu sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með fræðslumálum, íþrótta- og tómstundamálum og félagsþjónustu sem og verður tengiliður við samstarfssveitarfélög í málflokkum sviðsins.

Um er að ræða 100% starf í stjórnsýslu sveitarfélagsins.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Sviðsstjóri ber ábyrgð gagnvart sveitarstjóra og sveitarstjórn í öllum störfum sínum og ákvörðunum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirstjórn þeirra málaflokka sem falla undir sviðið
  • Yfirumsjón með gerð fjárhags- og starfsáætlana fyrir sviðið og stofnanir þess
  • Vinnur að stefnumótun fyrir sviðið og stofnanir þess í samstarfi við hagaðila
  • Ábyrgð á veitingu sérfræðiþjónustu innan sviðsins og tryggja tengingu hennar þvert á málaflokka
  • Leiðir ytra og innra samstarf og samþættingu starfsemi sviðsins þvert á málaflokka
  • Starfar með fræðslu- og velferðarnefnd og íþrótta- og tómstunda- og menningarnefnd
  • Eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða sem í gildi eru og heyra undir sviðið
  • Tryggir heildstæða samhæfða þjónustu við fjölskyldur í samstarfi við samstarfsaðila
  • Frumkvæði að samskiptum og aðgerðum til að styrkja samfélagið

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Háskólamenntun á sviði fræðslumála
  • Viðbótarmenntun á sviði stjórnunar eða öðru sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun og mannauðsmálum
  • Reynsla af faglegri forystu og þróunarstarfi í skólum
  • Reynsla af áætlanagerð og opinberri stjórnsýslu
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þekking á helstu upplýsingakerfum
  • Þekking á undirbúningi og stjórnun funda
  • Hæfni í framsetningu á efni í ræðu og riti

 

Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2026

Sótt er um starfið á www.mognum.is

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

 

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is

Getum við bætt efni þessarar síðu?