Fara í efni

Sumarstörf: Flokkstjóri vinnuskóla í Þingeyjarsveit

Þingeyjarsveit óskar eftir flokkstjóra vinnuskólans í sumar. 

Starfið felst m.a. í því að:

  • Stjórna starfi nemenda vinnuskólans, leiðbeina þeim og fræða þau um rétt vinnubrögð og verkþætti í starfinu í samráði við umsjónarmenn áhaldahúss
  • Sinna verkefnum við hreinsun á umhverfi sem og almennum garðyrkjustörfum
  • Vinna markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan nemenda

Hæfniskröfur:

  • Bílpróf er skilyrði sem og kerrupróf
  • Vera góð fyrirmynd
  • Stundvísi og vinnusemi
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Hreint sakavottorð

Laun og launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. júní, eða eftir samkomulagi.

Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2026. Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Hinriksdóttir, verkefnastjóri æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála: gunnhildur@thingeyjarsveit.is eða í síma 512-1800.

Umsóknum ásamt ferilsskrá skal skila á netfangið gunnhildur@thingeyjarsveit.is 

Þingeyjarsveit áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Getum við bætt efni þessarar síðu?