Sumarstarf hjá Þingeyjarsveit

Þingeyjarsveit auglýsir 100% sumarstarf laust til umsóknar. Starfstímabilið er 13 vikur, frá 15. maí til og með 18. ágúst.

Starfssvið:

  • Í starfinu felst skipulagning og stýring á vinnuskóla við ýmis garðyrkjustörf o.fl.
  • Leiðsögn, hópefli og hvatning til góðra verka
  • Tómstunda- og forvarnarstarf að hluta
  • Önnur þjónusta og verkefni sem vinnuskólinn veitir hverju sinni

Reynsla og hæfniskröfur:

  • Umsækjendur skulu vera 18 ára (fædd 1999 eða fyrr)
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð fyrirmynd og heilbrigður lífstíll
  • Stundvísi og samviskusemi

Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á Kjarna 650 Laugar eða í gegnum netfangið hermann@thingeyjarsveit.is

Laun samkvæmt kjarasamningi Framsýnar og launanefnd sveitarfélaganna.
Umsóknarfestur er til 13.maí nk.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Pétursson hermann@thingeyjarsveit.is sími 464-3322