Sumarlokun skrifstofu Þingeyjarsveitar í Reykjahlíð

Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Þingeyjarsveitar í Reykjahlíð lokuð frá 10. júlí til 7. ágúst. 

Hægt verður að bera upp erindi á skrifstofu sveitarfélagsins á Laugum í Kjarna eða með því að hringja í síma 464-3322.

Opið er í kjarna alla virka daga á milli 09:00-12:00 og 12:30-15:00.
Sumarlokun skrifstofu Þingeyjarsveitar í Kjarna nær frá 31. júlí til 7. ágúst. Báðar skrifstofur opna svo að nýju 8. ágúst, eftir verslunarmannahelgina.

Við minnum einnig á að hægt er að senda tölvupóst á netfang Þingeyjarsveitar, thingeyjarsveit@hingeyjarsveit.is.