Styrkur til uppsetningar hleðslustöðva

Skútustaðahreppur og Þingeyjarsveit fengu nýverið styrk úr Orkusjóði til uppsetningar á hleðslustöðvum við opinberar byggingar. Styrkurinn nemur fjórum milljónum króna og er stefnt að uppsetningu hleðslustöðva í tengslum við íþróttamannvirki, skólabyggingar og aðrar þekkingarmiðstöðvar í sveitarfélögunum. Sótt var um styrkinn á grunni vinnu við Nýsköpun í norðri (NÍN), en meðal áhersluatriða íbúasamráðs NÍN var uppbygging hringrásarhagkerfis innan sveitarfélaganna. Mikil framleiðsla er á rafmagni innan svæðisins og mun verkefnið ýta undir staðbundna orkunýtingu og minni gjaldeyrisnotkun vegna kaupa á jarðefnaeldsneyti.

Undirbúningur að verkefninu er hafinn og er stefnt að uppsetningu hleðslustöðvanna á fyrri hluta þessa árs.

Frekari upplýsingar um úthlutun Orkusjóðs má finna hér.