Styrkir til lista- og menningarstarfs

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarstarfs á árinu 2024. Bæði einstaklingar og félagasamtök geta sótt um styrki og metur nefndin hvaða verkefni eru styrkhæf og hver ekki. Félagasamtök þurfa að skila inn ársreikningi liðins árs með umsókn. Þá ber styrkþegum að skila inn til nefndarinnar greinargerð um framgang verkefnis og ráðstöfun styrkfjár innan árs frá styrkveitingu. Umsóknum skal skilað á heimasíðu Þingeyjarsveitar, smellið hér.
Umsóknir og fylgiskjöl skulu berast í síðasta lagi 15. apríl n.k.

Úthlutunarreglur sjóðsins má sjá hér.

Ath. minnum styrkþega 2023 á að skila inn greinargerð um framgang verkefnis og ráðstöfun styrkfjár í viðhengi.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveitar.