Stórutjarnaskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir kennara

Stórutjarnaskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir kennara á unglingastigi í afleysingar á haustönn

Viðkomandi þarf að:

  • bera virðingu fyrir börnum
  • hafa góða samskiptahæfni
  • geta m.a. kennt íslensku og náttúrufræði á unglingastigi
  • vera sjálfstæður í vinnubrögðum og sýna frumkvæði
  • vera stundvís og lausnamiðaður

Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik- grunn- og tónlistarskóli með um 45 nemendur frá eins árs til 16 ára aldurs. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði. Skólinn er Grænfánaskóli og Heilsueflandiskóli og leggur áherslu á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólans og er skólinn í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni. Þá tekur Stórutjarnaskóli þátt í þróunarstarfi með skólum erlendis.

Staðan er laus frá og með 15. ágúst 2022.

Umsóknarfrestur er til 20. júní 2022.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband í síma 4643220/8483547 eða í gegnum netfangið birnada@storutjarnaskoli.is

Umsóknir skulu sendar á netfangið birnada@storutjarnaskoli.is

Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi