Störf í Þingeyjarskóla: Skólaliði og aðstoð í eldhúsi
Viltu vinna í skemmtilegu umhverfi, með frábærum nemendum og með góðu samstarfsfólki? Ef svo er ættir þú að íhuga starf í Þingeyjarskóla.
Við viljum fá til liðs við okkur:
Skólaliða í 100% starf frá og með 15. ágúst.
Aðstoð í eldhúsi Þingeyjarskóla 60 – 70% starf frá 15. ágúst.
Við leitum að starfsfólki sem:
- Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
- Er lausnamiðað
- Er sveigjanlegt og með góða samskiptahæfni
- Er sjálfstætt í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði
- Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni
- Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu
- Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim
Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af um 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra.
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 2026. Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is eða nanna@thingeyjarskoli.is
Nánari upplýsingar veita Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri grunnskóla- og tónlistardeildar í vs. 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is og Nanna Marteinsdóttir skólastjóri leikskóladeilda í vs. 4643590/8980790 eða í gegnum netfangið nanna@thingeyjarskoli.is