Fara í efni

Starfsmaður í mötuneyti Stórutjarnaskóla

Stórutjarnaskóli auglýsir eftir starfsmanni í mötuneyti. Um er að ræða 70% stöðu

Helstu verkefni:

  • Vinnur undir leiðsögn matráðs
  • Þátttaka í matseld fyrir nemendur og starfsfólk Stórutjarnaskóla
  • Sér um að matur sé samkvæmt lýðheilsumarkmiðum, hollur, fjölbreyttur og snyrtilega framborinn
  • Frágangur og þrif í eldhúsi og matsal
  • Umsjón með þvotti sem tilheyrir mötuneyti

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er kostur
  • Skipulagshæfni, snyrtimennska og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi
  • Stundvísi og áreiðanleiki

Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik- grunn- og tónlistarskóli með um 45 nemendur frá eins árs til 16 ára aldurs. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði. Skólinn er Grænfánaskóli og Heilsueflandi skóli og er að innleiða teymiskennslu, leiðsagnarnám og Heillaspor. Lögð er áhersla á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska.

Mikið samstarf er milli námshópa innan skólans og er skólinn í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni.

Staðan er laus frá 14. ágúst 2026

Umsóknarfrestur er til 1. júní 2026 og skulu umsóknir berast á netfangið postur@storutjarnaskoli.is Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Birna Davíðsdóttir, skólastjóri Stórutjarnaskóla, í gegnum tölvupóst postur@storutjarnaskoli.is og í síma 4643220

Getum við bætt efni þessarar síðu?