Fara í efni

Starf sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Þingeyjarsveitar laust til umsóknar

Starf sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Þingeyjarsveitar laust til umsóknar

Þingeyjarsveit leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi til að leiða umhverfis- og framkvæmdasvið sveitarfélagsins.

Meginverkefni sviðsins eru umhverfismál, umsjón með fasteignum sveitarfélagsins, nýframkvæmdum, viðhaldi fasteigna, vatnsveitu, fráveitu og hitaveitu, viðhaldi gatna og snjómokstri. Sviðið hefur yfirumsjón með þjónustumiðstöð, garðyrkju og umhverfi, opnum svæðum, landgræðslu og skógrækt, vinnuskóla, sorpmálum og hreinlætismálum sem og umsjón með fjallskilum, girðingum og meindýravörnum. Sviðsstjóri gegnir einnig starfi byggingafulltrúa og heyrir beint undir sveitarstjóra.

Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafi störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á stjórn og daglegum rekstri umhverfis- og framkvæmdasviðs, þ.m.t. mannaforráð
  • Stefnumótun og áætlanagerð í málaflokknum, verkefnastjórn og kostnaðareftirlit
  • Ábyrgð á úrgangsmálum í sveitarfélaginu
  • Ábyrgð á verkefnum sem tengjast náttúru- umhverfis- og loftlagsvernd, skógrækt, friðlýsingu svæða, náttúruminjum og umhverfisfræðslu í sveitarfélaginu
  • Ábyrgð á skipulags- og byggingarmálum
  • Ábyrgð á stjórnsýslulegri úrvinnslu og gagnaskilum innan sviðsins
  • Samskipti, upplýsingagjöf og samstarf við fagnefndir, hagsmunaaðila og stofnanir
  • Önnur verkefni í samráði við sveitarstjóra

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Menntun á sviði verk-, tækni, eða byggingafræði
  • Réttindi til að starfa sem byggingafulltrúi sbr. 8. gr. og 25. gr mannvirkjalaga nr. 160/2010
  • Löggilding í gerð eignaskiptayfirlýsinga og merkjalýsinga æskileg
  • Þekking og reynsla úr opinberri stjórnsýslu nauðsynleg
  • Umtalsverð þekking og reynsla á viðhaldi mannvirkja og verkefnastjórnun
  • Víðtæk og farsæl reynsla af verkefnum sem falla að starfinu
  • Þekking á lögum og reglugerðum sem varða starfsemi sviðsins
  • Leiðtogahæfni, jákvæðni og rík færni í mannlegum samskiptum er mikilvæg
  • Góð skipulagsfærni, árvekni og öguð vinnubrögð
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Reynsla af starfsmannahaldi og mannaforráðum er æskileg
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Góð almenn tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni
  • Þekking á staðháttum og innviðum í sveitarfélaginu er kostur

 

Umsóknarfrestur er til og með 13. nóvember 2026.

Sótt er um starfið á umsokn@thingeyjarsveit.is

Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum. Samkvæmt áætlun um jafnréttismál Þingeyjarsveitar skal það kynið sem er í minnihluta í starfsgreinum ganga fyrir við ráðningar þegar umsækjendur eru taldir jafn hæfir. Þingeyjarsveit áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Nánari upplýsingar veitir Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri, katrins@thingeyjarsveit.is

Þingeyjarsveit er landmesta sveitarfélag landsins og státar af einstakri náttúrufegurð og náttúruauðlindum. Sveitarfélagið er sannkölluð útivistarparadís. Atvinnulífið er öflugt með fjölbreyttum möguleikum, m.a. í ferðaþjónustu, landbúnaði og matvælaframleiðslu. Aðstaða er fyrir hendi fyrir störf án staðsetningar. Þingeyjarsveit leggur áherslu á umhverfismál og sjálfbæra nýtingu auðlinda ásamt blómlegu mannlífi.

Þingeyjarsveit er ákjósanlegur búsetukostur fyrir þá sem kjósa gott mannlíf, friðsæld í fagurri sveit með nálægð við stóra þéttbýlisstaði.

Getum við bætt efni þessarar síðu?