Fara í efni

Starf húsvarðar í Ýdölum og Þingeyjarskóla í afleysingu í júlí

Þingeyjarsveit óskar eftir verktaka til afleysinga við húsvörslu í Ýdölum og Þingeyjarskóla í júlí.

Helstu verkefni:

  • Ábyrgð á daglegri umsjón með húsnæðinu og búnaði þess ásamt eftirliti
  • Minni viðhaldsverkefni og smáviðgerðir ásamt umhirðu lóðar
  • Móttaka leigutaka vegna viðburða og upplýsingagjöf til þeirra varðandi umgengni, frágang og aðrar kröfur skv. leigusamningi.
  • Þrif eftir fundi og aðra viðburði
  • Önnur tilfallandi störf

Hæfniskröfur:

  • Góð þjónustulund og samskiptahæfni
  • Frumkvæði og skipuleg vinnubrögð
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af umsjón fasteigna er kostur


Umsóknarfrestur er til og með 5. júní nk. Með umsókn skal fylgja starfsferilsskrá. Umsóknum skal skilað á netfangið umsoknir@thingeyjarsveit 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Hólm Valsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs í síma 512-1800 eða í netfangið margret.holm@thingeyjarsveit.is 

Þingeyjarsveit áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Getum við bætt efni þessarar síðu?