SSNE kynnti starfsemi samtakanna fyrir sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
03.10.2026
SSNE kynnti starfsemi samtakanna fyrir sveitarstjórn
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hélt sinn 87. fund þann 1. október. Á fundinn voru mættir þrír aðalfulltrúar og fjórir varafulltrúar úr sveitarstjórn.
Óvenju mörg mál voru á dagskrá eða 47, hægt er að nálgast fundargerðina á heimasíðunni www.thingeyjarsveit.is
Í lok fundar komu Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE og Elva Gunnlaugsdóttir, verkefnastjóri SSNE og kynntu starfsemi Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra. Allar frekari upplýsingar um SSNE má finna á vefsíðu samtakanna, SSNE.is