Sorphirðudagatal Þingeyjarsveitar 2017

Gámaþjónustan hefur sett saman sorphirðudagatal fyrir árið 2017. Sveitarfélaginu er skipt upp í fjögur svæði þegar kemur að losun heimilissorps. Almenna sorp ílátið er losað á þriggja vikna fresti á meðan pappa- og plast ílát eru losuð á sex vikna fresti.

Sorpdagatalið má nálgast með því að smella HÉR eða að neðan. Með því að smella á myndina að neðan má sjá dagatalið stærra.

Einnig er hægt að nálgast allar upplýsingar um sorpmál ásamt sorpdagatalið HÉR.

Svæði 1 er Reykjadalur-Staðarbraut og Laxárdalur og er litur svæðisins svartur.
Svæði 2 er Aðaldalur frá Laxárvirkjun að fljótsbrú og er litur svæðisins appelsínugulur.
Svæði 3 er Kinn-Bárðadalur og er litur svæðisins fjólublár.
Svæði 4 er Ljósavatnsskar-Fnjóskadalur og er litur svæðisins grár.

Litur svæðisins blandast svo við litinn á þeirri tunnu sem tekin er hverju sinni. Pappatunnurnar eru bláar og plasttunnurnar eru grænar. Ef losa á plastunnu á svæði 1 sem er svart að þá er reiturinn hálfur svartur og hálfur grænn.