Skrifstofur lokaðar fram eftir morgni vegna starfsmannafundar

Skrifstofur Þingeyjarsveitar verða lokaðar fram eftir morgni vegna starfsmannafundar. Gert er ráð fyrir að skrifstofan á Laugum opni kl .10:30 og skrifstofan í Reykjahlíð um kl. 11. Um er að ræða reglulegan upplýsinga- og samráðsfund starfsmanna skrifstofa, áhaldahúss og veitna sem haldinn er fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði.