Skráning er hafin í vinnuskólann sumarið 2022

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Vinnuskóla Þingeyjarsveitar í sumar. Vinnuskólinn er fyrir 14-17 ára ungmenni fædd árin 2004, 2005, 2006 og 2007, þ.e. fyrir 8. til 10. bekk og fyrsta árs nemendur í framhaldsskóla.

Skráning er rafræn og fer fram hér og mikilvægt að fylla út alla reiti í skráningarforminu.

Skráningu líkur fimmtudaginn 2. júní nk.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Pétursson umsjónarmaður í síma: 858 3322, einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið hermann@thingeyjarsveit.is