Skólar Þingeyjarsveitar auglýsa eftir starfsfólki

 

Þingeyjarsveit er landmesta sveitarfélag landsins og státar af einstakri náttúrufegurð og náttúruauðlindum. Sveitarfélagið er sannkölluð útivistarparadís. Atvinnulífið er öflugt með fjölbreyttum möguleikum, m.a. í ferðaþjónustu, landbúnaði og matvælaframleiðslu. Aðstaða er fyrir hendi fyrir störf án staðsetningar. Þingeyjarsveit leggur áherslu á umhverfismál og sjálfbæra nýtingu auðlinda ásamt blómlegu mannlífi.

 

Íbúar Þingeyjarsveitar eru rúmlega 1400 talsins og í sveitarfélaginu eru starfandi þrír skólar, hver og einn samrekinn leik- grunn- og tónlistarskóli með nemendur frá eins árs til 16 ára. Ekki má gleyma Framhaldsskólanum á Laugum í Reykjadal. Góð aðstaða er til íþróttaiðkunar í sveitarfélaginu.

Skólar Þingeyjarsveitar leggja áherslu á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólana og teymiskennsla öflug. Skólar Þingeyjarsveitar eru í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni. Áhersla er á umhverfismennt og heilsueflandi skólastarf. Skólarnir hafa lagt rækt við ríkar tónlistarhefðir.

Lausar stöður eru við skóla Þingeyjarsveitar næsta skólaár. Við leitum að fólki sem:

  • Er umhugað um velferð barna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins.
  • hefur afburða góða samskiptahæfni og metnað til að takast á við fjölbreytt verkefni með nemendum.
  • hefur áhuga á skólaþróun og skapandi kennsluháttum.
  • er jákvætt og sveigjanlegt, sjálfstætt í vinnubrögðum og sýnir frumkvæði.
  • er samstarfsfúst og lausnamiðað, tilbúið að takast á við ný og spennandi verkefni í samstarfi og teymisvinnu.
  • er með viðeigandi menntun eða menntun sem nýtist í starfi.

Umsóknafrestur um stöðurnar er til 21. júní og skal umsóknum skilað til viðkomandi skólastjóra. Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi ef við á. Gerð er krafa um hreint sakavottorð.

Þingeyjarskóli í Aðaldal er með um 100 nemendur á leik- og grunnskólaaldri, þar af rúmlega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum.
Við Þingeyjarskóla eru lausar stöður:
- Skólaliða í 80-100% starf frá 15. ágúst 2023.
- Stuðningsfulltrúa við leikskóladeildina Barnaborg í 80-100% starf frá 1. ágúst 2023.
- Leikskólakennara/leikskólastarfsmanni við leikskóladeildina Barnaborg á Hafralæk í 100% starf frá 1. ágúst 2023.
- Leikskólakennara/leikskólastarfsmanni við leikskóladeildina Krílabæ á Laugum í 60-80% starf frá 1. ágúst 2023.

Möguleiki er á húsnæði á staðnum.

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í síma 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

Reykjahlíðarskóli í Mývatnssveit er með um 40 nemendur í 1.-10. bekk og tæplega 30 nemendur í leikskólanum Yl.
Við Reykjahlíðarskóla eru lausar stöður:
-Tónlistarkennari í 100 % starf

Í leikskólanum Yl eru lausar stöður:
- Leikskólakennara í 80-100% starf frá 1. ágúst 2023.
- Leikskólaliða á leikskólann Yl í 60-100% starf frá 1. ágúst 2023.

Möguleiki á húsnæði á staðnum.

Nánari upplýsingar veitir Anna Sigríður Sveinbjörnsdóttir skólastjóri í síma 4644375 eða í gegnum netfangið anna@reykjahlidarskoli.is