Skólamáltíðir í grunn- og leikskólum Þingeyjarsveitar

Sveitarstjórn samþykkti við gerð fjárhagsáætlunar 2018, að skólamáltíðir við grunn- og leikskóla Þingeyjarsveitar verði gjaldfrjáls fyrir alla nemendur skólanna árið 2018. 

Í mötuneytum skólanna er boðið upp á hollan og góðan mat, morgunmat, ávaxtastund og heitan mat í hádeginu. Þessi ákvörðun sveitarstjórnar er liður í að bæta velferð barna og unglinga í sveitarfélaginu.