Fara í efni

Skólaliði í 100% starf óskast í Stórutjarnaskóla

Stórutjarnaskóli í Þingeyjarsveit leitar eftir skólaliða í 100% starf.
Um er að ræða spennandi starf fyrir metnaðarfullan einstakling með góða samskiptahæfileika gagnvart börnum og unglingum í leik og starfi. Starfsmaður er þátttakandi í uppeldisstarfi skólans.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum er forsenda og metnaður fyrir góðri umgengni og að halda húsnæði skólans hreinu og snyrtilegu.
  • Starfsmaðurinn skal sýna nemendum skóla gott fordæmi, vera jákvæður, heilsuhraustur, traustur og samkvæmur sjálfum sér. Gerð er krafa um hreint sakavottorð.
  • Mikill kostur ef viðkomandi hefur menntun sem skólaliði.

Stórutjarnaskóli er í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik- grunn- og tónlistarskóli með um 40 nemendur frá eins árs til 16 ára aldurs. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði. Skólinn er Grænfánaskóli og Heilsueflandiskóli og leggur áherslu á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólans og er skólinn í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni.

Umsóknarfrestur er til 24. mars 2026

Um er að ræða heilsársstarf og þarf umsækjandi að geta hafið störf sem fyrst. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Framsýnar.

Hvetjum alla áhugasama til að sækja um.

Frekari upplýsingar gefur Birna Davíðsdóttir skólastjóri Stórutjarnaskóla.
Sími 848-3547 / 4643220
Umsóknir skulu sendar á netfangið birnada@storutjarnaskoli.is  
Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá.

Getum við bætt efni þessarar síðu?