Samúðarkveðja vegna sjóslyssins
26.11.2026
Hugur okkar er hjá þeim sem eiga um sárt að binda vegna hins hörmulega sjóslyss austur af landinu.
Þingeyjarsveit vottar aðstandendum þeirra sem létust innilega samúð og sendir ástvinum þeirra, skipverjum og öllum þeim sem slysið snertir hlýjar kveðjur á þessum erfiðu tímum.
Jafnframt færum við björgunarfólki og öllum þeim sem komu að björgunaraðgerðum innilegar þakkir fyrir ómetanlegt starf við afar erfiðar aðstæður.