Rannís heimsækir Þingeyinga - Tækifæri og styrkir á sviði menntunar og menningar

Mennta- og menningarsvið Rannís býður til hádegisfundar miðvikudaginn 2. nóvember kl. 12:00-13:15. Fundurinn fer fram á Fosshótel Húsavík og verður boðið upp á gómsæta súpu í hádegismat fyrir þátttakendur. Til að áætla magn er fólk beðið um að skrá þátttöku sína hér.

Markmið ráðgjafa á vegum Rannís, er að kynna tækifæri sem bjóðast innan evrópskra og norrænna styrkjaáætlana, svo sem

  • Erasmus+ áætlunar ESB fyrir öll skólastig og æskulýðsmál
  • Creative Europe kvikmynda- og menningaráætlunar ESB
  • Nordplus menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar og
  • áætlun Uppbyggingarsjóðs EES

auk þess sem fleiri leiðir til evrópsks samstarfs verða kynntar.

Við hvetjum sveitarfélög, skóla, fræðsluaðila, menningarstofnanir, æskulýðsgeirann, fyrirtæki, ungt fólk og öll sem áhuga hafa á alþjóðasamstarfi að nýta tækifærið og taka þátt. Starfsfólk Rannís verður svo til taks eftir kynningarnar fyrir þau sem vilja ræða möguleikana á evrópsku samstarfi nánar.