Ráðgjöf vegna COVID-19 og mannamóta

Embætti landlæknis hefur birt á vefsíðu sinni ráðgjöf vegna COVID-19 og mannamóta.

Ráðgjöf vegna COVID-19 og mannamóta

Tilfellum nýju kórónaveirunnar hefur fjölgað hratt undanfarna daga og vikur. Um þessar mundir geisar alvarlegur faraldur veirunnar á Ítalíu og líkur er á að hún muni halda áfram útbreiðslu sinni í álfunni næstu vikur og mánuði. Nú þegar hafa tugir tilfella komið upp hér á landi og hundruð eru í sóttkví eftir að hafa orðið útsett fyrir smiti.
Ekki er samkomubann í gildi á Íslandi en ekki er útilokað að gripið verði til slíkra aðgerða meðan unnið er að því að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar hér á landi. Því er eðlilegt að skipuleggjendur fjölmennra viðburða séu uggandi yfir stöðunni. Meðan faraldur geisar þarf ávallt að meta hvort rétt sé að halda viðburð eða hvort betra sé að fresta tilteknum viðburði þar til faraldur er genginn yfir.
Fyrir skipuleggjendur
Meðan ekkert samkomubann er í gildi er mikilvægt fyrir skipuleggjendur að gæta vel að smitvörnum á viðburðum. Nauðsynlegt er að gestir hafi greiðan aðgang að heitu vatni og sápu, handspritti og einnota þurrkum. Einnig er brýnt að skipuleggjendur taki mið af þeim hópi sem mun sækja viðburðinn. Vitað er að eldri borgarar og þeir sem glíma við undirliggjandi sjúkdóma (t.d. sykursýki, hjarta- og æðasjúkdóma, langvinna lungnateppu, langvinna nýrnabilun og krabbamein) eru í mestri hættu með að fá alvarleg einkenni COVID-19.
Skipuleggjendur verða jafnframt að brýna fyrir þátttakendum að þeir sem eiga að vera í sóttkví eftir að hafa orðið útsettir fyrir smit eiga ekki að mæta á viðburðinn. Þar sem ekki hefur verið sett á samkomubann þá er það á ábyrgð skipuleggjenda viðburða að taka upplýsta ákvörðun um framhaldið. Ef grunur leikur á að ekki verði hægt að tryggja öryggi einstaklinga sem eru í áhættuhópi eða að erfitt verði að tryggja gott aðgengi að hreinlætisaðstöðu, handspritti o.þ.h. er ráðlagt að taka til skoðunar hvort halda skuli viðburðinn.
Fyrir þátttakendur
Áður en ákveðið er að halda viðburð þarf hver og einn að meta stöðu sína vel. Almennt eigum við ekki að vera í mikilli nálægð við aðra þegar við finnum fyrir flensulíkum einkennum. Sérstaklega er þetta mikilvægt fyrir þá sem annað hvort hafa verið á skilgreindum hættusvæðum eða verið í tengslum við einstaklinga með staðfest eða grunað smit. Þessir aðilar ættu að forðast samneyti við aðra einstaklinga og vera í sóttkví.
Á fjölmennum viðburði er einkar mikilvægt að huga vel að persónulegu hreinlæti; þvo hendur reglulega, nota handspritt þegar þörf krefur og hnerra eða hósta í einnnota þurrku eða í olnbogabótina.