Fara í efni

Óskum eftir verktaka til heimreiðasnjómoksturs

Þingeyjarsveit auglýsir eftir umsóknum vegna verksamninga um heimreiðamokstur á þjónustusvæði S3.

Um er að ræða snjómokstur á svæðinu S3 – Hraunbær suður að Helgastöðum, að meðtöldum Hvammsvegi og Staðarbraut.

Verktaki skal annast snjómokstur á þeim vegum og svæðum sem tilgreind eru. Frekari upplýsingar um svæðið veitir sviðsstjóri umhverfis-og framkvæmdasviðs í tölvupóstfanginu roggi@thingeyjarsveit.is. Við val á verktökum verður fyrst og fremst horft til snjómokstursreynslu, þekkingu á svæðinu sem sótt er um og tækjakost. Um er að ræða samning til 1. júlí 2027 sem hægt er svo að framlengja tvívegis um eitt ár.

Ef tvær eða fleiri umsóknir eru jafngildar samkvæmt þeim valforsendum sem tilgreindar voru í fyrirliggjandi gögnum skal val á viðsemjanda fara fram með hlutkesti. Hlutkesti skal framkvæmt með gagnsæjum og sannanlegum hætti og framkvæmd þess og niðurstaða skráð í málsgögn. Sveitarstjóri eða sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs skulu staðfesta framkvæmd hlutkestis og skal þátttakendum tilkynnt fyrir fram um fyrirhugaða framkvæmd þess.

Umsóknir skulu innihalda: nafn og kennitölu fyrirtækis/verktaka, nafn heimili og símanúmer umsjónaraðila/mokstursmanns (ef ekki sá sami og verktaki), upplýsingar um reynslu af snjómokstri, tækjakost og upplýsingar um þekkingu á svæðinu. Umsóknir skulu berast fyrir miðvikudaginn 30. september 2026. Öllum umsóknum verður svarað þegar yfirferð og val á verktökum liggur fyrir. Þingeyjarsveit áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum ef málefnalegar ástæður eru fyrir hendi.

Frekari upplýsingar veitir sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Rögnvaldur Harðarson í síma 512-1800 eða með tölvupósti roggi@thingeyjarsveit.is 

Getum við bætt efni þessarar síðu?