Fara í efni

Óskum eftir skólastjóra við Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit

Leitað er að drífandi og traustum einstaklingi með góða þekkingu á skólastarfi til að leiða skapandi skólastarf og virkja þátttöku skólans í samfélagslegum nýsköpunarverkefnum í anda sjálfbærrar þróunar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg forysta og þróun skólastarfs í samræmi við lög um grunnskóla, aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Þingeyjarsveitar
  • Daglegur rekstur, stjórnun og starfsmannamál
  • Leiða starf í framsæknu skólasamfélagi sem nýtir styrkleika sem felast í fjölbreyttri náttúru og sterku samfélagi
  • Samstarf við aðila innan skólasamfélagsins
  • Önnur verkefni í samráði við yfirmann

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Leyfisbréf sem kennari og starfsreynsla á sviði kennslu
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- eða menntunarfræða er kostur
  • Reynsla af stjórnun, stefnumótun og áætlanagerð
  • Áhugi og reynsla af skólaþróun og framsæknu skólastarfi
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
  • Hugmyndaauðgi og frumkvæði
  • Góð færni í samskiptum og leiðtogahæfileikar
  • Mjög góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli

Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði í um 20 mínútna akstursfjarlægt frá Akureyri. Stórutjarnaskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með um 45 nemendur frá eins árs til 16 ára aldurs og 24 starfsmenn. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði.

Skólinn er Grænfánaskóli og Heilsueflandi skóli.
Unnið er í teymum og verið er að innleiða leiðsagnarnám. Lögð er áhersla á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik-, náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólans og er skólinn í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni.

Sótt er um á www.mognum.is

Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2026.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Þingeyjarsveit áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Nánari upplýsingar veita:

Getum við bætt efni þessarar síðu?