Opinn fundur um stjórnunar- og verndaráætlun Mývatns og Laxár
Náttúruverndarstofnun hefur sett saman samráðshóp um gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðlýst svæði Mývatns og Laxár. Í næstu viku, þriðjudaginn 21. apríl kl. 16:30, verður opinn fundur í Skjólbrekku þar sem íbúum gefst kostur á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Á dagskrá fundarins er kynning á vinnslu verndaráætlunar, upplýsingar um tengiliði auk vinnustofu og umræðna.
Fulltrúi Þingeyjarsveitar í samráðshópnum er Brynja Dögg Ingólfsdóttir, en hún er skipulagsfulltrúi sveitarfélagsins. Davíð Örvar Hansson og Stefán Frímannsson leiða vinnuna fyrir hönd Náttúruverndarstofnunar. Ferlið við þetta stóra og mikilvæga verkefni er gagnsætt og á þessari síðu er hægt að skoða gögn, kynningar og fundargerðir. Myndaður verður starfshópur fyrir næstu skref, en í honum eru fulltrúar sveitarfélaganna Þingeyjarsveitar og Norðurþings, fulltrúi landeigenda, fulltrúi náttúruverndarsamtaka, fulltrúi nýtingaraðila og fulltrúi sérfræðistofnana.
Mývatn og Laxá eru vernduð samkvæmt lögum nr. 97/2004. Markmið laganna er að stuðla að náttúruvernd í samræmi við sjálfbæra þróun og tryggja að vistfræðilegu þoli svæðisins verði ekki stefnt í hættu af mannavöldum. Tekur verndunin til Mývatns og Laxár með eyjum, hólmum og kvíslum, allt að ósi árinnar við Skjálfandaflóa, ásamt 200 metra breiðum bakka meðfram Mývatni öllu og Laxá báðum megin.
Hér má lesa kynningu um verkefnið, nánar um skipun samráðshóps og starfshóps o.fl.
