Ný auglýsing heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomubanni vegna COVID-19

Ný auglýsing heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomubanni vegna COVID-19 tekur gildi 28. ágúst n.k. og gildir til og með 10. september.

Fram kemur á vefsíðu heilbrigðisráðuneytisins að auglýsingin taki ekki til skólastarfs eins og núgildandi auglýsing, heldur er fjallað sérstaklega um takmarkanir á skólahaldi í auglýsingu sem tók gildi 21. ágúst s.l. og gildi til 29. september n.k. Sú auglýsing er einnig í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis og var unnin í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Markmikið með þeirri auglýsingu er að raska sem minnst skólastarfi vegna farsóttarinnar þrátt fyrir að gætt sé að sóttvarnarsjónarmiðum.

Helstu breytingar í nýrri auglýsingu ráðherra eru:

  • 2 metra reglan: Ákvæði um almenna nálægðartakmörkun er breytt. Þar sem nú er kveðið á um að rekstraraðilar skuli tryggja að hægt sé að tryggja að minnsta kosti 2 metra milli einstaklinga sem ekki deila heimili verður ákvæðið þannig að tryggja beri að hægt sé að tryggja að minnsta kosti 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
  • Íþróttir: Samkvæmt nýju auglýsingunni verða íþróttir almennt leyfðar. Þær íþróttagreinar sem ekki heyra undir ÍSÍ (Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands) skulu setja sér leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbeiningum og sambærilegar íþróttagreinar innan ÍSÍ.
  • Sviðslistir, tónlist og kvikmyndataka: Snertingar verða heimilar á æfingum í sviðslistum og tónlist á sama hátt og í íþróttum. Sama gildir um kvikmyndatöku.
  • Líkamsræktarstöðvar: Takmarkanir vegna sérstakrar smithættu verða þær sömu á líkamsræktarstöðvum og á sund- og baðstöðvum. Gestir mega þar aldrei vera fleiri en nemur helmingi eða minna af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi.

Auglýsingin