Niðurstaða sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar vegna breytingar á aðalskipulagi

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann 14. september 2022 að Skipulagsstofnun yrði send breyting á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011 - 2023 sem felur í skilgreiningu efnistökusvæðis að Garði sem heimilar allt að 50.000 m3 efnistöku á um 2,4 ha. Breytingin var auglýst með umsagnarfresti frá og með 21. júní til og með 2. ágúst 2022. Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til athugunar og staðfestingar sbr. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.