Fara í efni

Niðurstaða sveitarstjórnar: Aðalskipulag Þingeyjarsveitar 2024 –2044

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann 26. febrúar 2026 nýtt aðalskipulag Þingeyjarsveitar 2024-2044 skv. 32. gr. skipulagslaga 123/2010.

Tillaga að aðalskipulaginu var auglýst frá 22. september til 17. nóvember 2025 og alls bárust 76 umsagnir og athugasemdir. Sveitarstjórn samþykkti einnig tillögur skipulagsnefndar að svörum við umsögnum sem bárust á auglýsingartíma og hefur skipulagstillagan verið uppfærð í samræmi við afgreiðsluna. Samþykkt skipulag hefur verið sent til Skipulagsstofnunar til staðfestingar. Öll skipulagsgögn, athugasemdir, umsagnir og viðbrögð eru aðgengileg á þessum hlekk:

Aðalskipulag Þingeyjarsveitar 2024-2044 á Skipulagsgátt.

 

Þau sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til sveitarstjóra eða skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins.

Skipulagsfulltrúi Þingeyjarsveitar

Getum við bætt efni þessarar síðu?