Fara í efni

Náms- og starfsráðgjafi óskast í 50% starf

Óskum eftir náms- og starfsráðgjafa í 50% starf við skólaþjónustu Þingeyjarsveitar.

Verksvið og megin verkefni:

  • Tekur þátt í teymisvinnu með öðrum sérfræðingum skólaþjónustu Þingeyjarsveitar.
  • Náms- og starfsfræðsla í elstu bekkjum grunnskóla.
  • Fræðsla í bekkjum um námstækni, skipulag og markmiðasetningu.
  • Fyrirlögn og úrvinnsla áhugasviðskannana.
  • Stuðningur og ráðgjöf um líðan og námsframvindu einstakra nemenda.
  • Ráðgjöf um markmið, námstækni og námsval til einstakra nemenda.

Hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið Náms- og starfsráðgjafi á Íslandi.
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni.
  • Góð samskiptafærni og sveigjanleiki í starfi.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnarðarfullu umhverfi.
  • Góð kunnátta í íslensku.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Gerð er krafa um hreint sakarvottorð.

Umsóknarfrestur er til 16. janúar 2026.

Umsóknir skal senda í tölvupósti til sviðsstjóra fjölskyldusviðs Þingeyjarsveitar:
hjordis.albertsdottir@thingeyjarsveit.is 
Nánari upplýsingar um starfið og launakjör veitir Hjördís Albertsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma 512 1800 eða á netfangið; hjordis.albertsdottir@thingeyjarsveit.is 

Getum við bætt efni þessarar síðu?