Matvælastofnun óskar eftir tilkynningum um villta dauða fugla

Nýlega upplýsti Matvælastofnun að í gildi séu hertar sóttvarnarreglur fyrir alifugla og aðra fugla í haldi vegna hættu á fuglaflensu sem gæti borist til landsins með komu farfugla nú í vor.

Matvælastofnun vekur athygli á að stofnunin óskar eftir tilkynningum ef villtir dauðir fuglar finnast í sveitarfélaginu, nema augljóst sé að þeir hafi drepist af slysförum. Tilgangurinn er að skima þá fyrir fuglaflensu og fylgjast þannig með mögulegri útbreiðslu hennar meðal farfugla hérlendis.

Best er að tilkynna með því að skrá ábendingu á vef stofnunarinnar, en líka er hægt að hringja í síma 530-4800 á opnunartíma eða senda tölvupóst á netfangið mast@mast.is.

Sjá nánar hér um Varnaraðgerðir gegn fuglaflensu.