Matráður í mötuneyti í Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði
80 – 100% staða matráðar
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
- hefur yfirumsjón með starfsemi í eldhúsi og annast almenn eldhússtörf
- annast matseld í samræmi við ráðleggingar landlæknis um mataræði barna í leik- og grunnskólum
- er í samstarfi við matráða Þingeyjarskóla og Reykjahlíðarskóla varðandi magninnkaup og uppsetningu matseðla
- annast frágang og geymslu matvæla
- annast tilfallandi önnur störf s.s. í tengslum við fundi, aðrar samkomur og uppbrotsdaga
Menntunar- og hæfnikröfur
- matartækninám
- þarf að hafa góða samskiptahæfni og kappkosta að sýna nemendum og samstarfsfólki virðingu í hvívetna
- þekking/reynsla af daglegum rekstri mötuneytis
- þekking/reynsla af næringarfræði, sérfæði, gæðum og fjölbreytileika matar er nauðsynleg
Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik- grunn- og tónlistarskóli með um 45 nemendur frá eins árs til 16 ára aldurs. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði. Skólinn er Grænfánaskóli og Heilsueflandiskóli og er að innleiða teymiskennslu. Lögð er áhersla á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólans og er skólinn í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni.
Staðan er laus
Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2025 og skulu umsóknir berast á netfangið birnada@storutjarnaskoli.is Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Birna Davíðsdóttir, skólastjóri Stórutjarnaskóla, í gegnum tölvupóst birnada@storutjarnaskoli.is og í síma 8483547