Mættu og hafðu áhrif!
19.11.2026
Þingeyjarsveit boðar til íbúafunda í nóvember sem hér segir:
Ljósvetningabúð mánudaginn 23. nóvember kl. 17:00
Ýdalir mánudaginn 23. nóvember kl. 20:00
Skjólbrekka þriðjudaginn 24. nóvember kl. 20:00
Breiðamýri miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17:00
Markmið fundanna er að ná fram sjónarmiðum íbúa og fá umræður um nýtingu og framtíð félagsheimila sveitarfélagsins.
Einnig verða til umræðu þjónustustefna sveitarfélagsins sem er í endurskoðun, ný atvinnustefna sem er í vinnuferli hjá atvinnu- og nýsköpunarnefnd og fleiri málefni í brennidepli.
Við hvetjum íbúa til að fjölmenna á fundina og hafa áhrif.
Rétt er að benda á að fundirnir eru á mismunandi tímum og því geta íbúar mætt á tíma sem hentar þeim í eitthvert félagsheimilanna. Sama dagskrá er hugsuð á öllum fundunum.