Lokanir á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum vegna viðhalds
Áætlað er að hefja viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði (vegnúmer 1) þann 26. maí næstkomandi og að hún standi yfir til 16. júní. Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin. Brúin verður lokuð yfir daginn vegna viðhaldsvinnunnar en það verður opnað fyrir umferð fjórum sinnum á dag, þrisvar sinnum í hálftíma í senn og einu sinni í klukkutíma. Brúin verður opin eftir að vinnu líkur að kvöldi og þar til vinna hefst á ný að morgni. Hún verður einnig opin um helgar.
Til stendur að mála brúna á þessu tímabili, það er að segja ef veður leyfir. Sá fyrirvari er gerður að ef ekki viðrar til málningarvinnu mun verkefnið frestast lengra inn í sumarið.
Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin. Opið verður fyrir umferð á eftirfarandi tímum dags:
- 09:45 – 10:15
- 12:00 – 13:00
- 14:45 – 15:15
- 16:45 – 17:15
Lokanir ættu ekki að hafa mikil áhrif á neyðarflutninga þar sem unnt verður að opna fyrir umferð um brúna með skömmu fyrirvara ef aðstæður krefjast.
Upplýsingaskilti með leiðbeiningum og merkingum verða sett upp við brúna.
Vegagerðin hvetur vegfarenda til að sýna þolinmæði, fylgja merkingum og virða fyrirmælum á svæðinu.
Frétt af heimasíðu Vegagerðarinnar