Líf í félagsheimilin okkar, þátttaka íbúa Þingeyjarsveitar
27.10.2026
Fimmtudaginn, 29. október, rennur út umsóknarfrestur í verkefni SSNE, "Virkjum íbúana" sem snýr að því að auka samverustundir fólks í samfélagshúsum sveitarfélagsins.
Ertu með hugmynd um verkefni og nýtingu húsanna? Spilakvöld, upplestur, ljóðakvöld, prjónakvöld, matarkvöld, námskeið eða annað sem hvetur til samveru og eykur hamingju íbúanna?
Endilega hafðu samband við Gunnhildi verkefnastjóra hjá Þingeyjarsveit, gunnhildur@thingeyjarsveit.is
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar er umhugað um að glæða félagsheimilin okkar lífi, Ljósvetningabúð, Ýdali, Breiðumýri og Skjólbrekku.
Bókun sveitarstjórnar frá 88. fundi þann 22. október sl. undir fundargerð starfshóps um eignastefnu:
Sveitarstjórn hyggst ljúka eignastefnu byggðri á vinnu eignastefnunefndar í upphafi næsta árs. Varðandi félagsheimilin vill sveitarstjórn hleypa af stokkunum átaksverkefni varðandi nýtingu á félagsheimilum sveitarfélaganna til að þau nýtist samfélagi og menningu sem best. Sveitarstjóra er falið að hefja undirbúning að uppstillingu íbúasamráðs um nýtingu félagsheimilanna meðal annars með því að auglýsa eftir hugmyndum á heimasíðu sveitarfélagsins, t.d. í sambandi við verkefnið "Virkjum íbúana".