Fara í efni

Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi eða leikskólaliði óskast

Leikskólinn Barnaborg í Aðaldal leitar að áhugasömum sérkennara, þroskaþjálfa eða leikskólaliða í framtíðarstarf. Barnaborg er hluti af Þingeyjarskóla, samreknum grunn- og leikskóla í Þingeyjarsveit. Í starfi skólans er lögð áhersla á að hlúa að sjálfsprottnum leik barnanna, öruggum tengslum barna við umönnunaraðila og virðingu fyrir öllum í leikskólastarfinu. Sjá nánar á: www.thingeyjarskoli.is  

  • Um er að ræða 80-100% framtíðarstarf
  • Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
  • Aðstoð veitt við að finna húsnæði í nágrenni skólans.
  • Umsóknarfrestur er til og með 4. september 2026

Helstu verkefni og ábyrgð

  • ·Veita stuðning og leiðsögn við börn með félagslegar áskoranir og/eða frávik í þroska með áherslu á samleik, jákvæð samskipti og þátttöku í barnahópnum
  • Sinna einstaklingsmiðaðri færniþjálfun með áherslu á almenna færni, fín- og grófhreyfingar og sjálfsbjörg
  • Veita ráðgjöf og stuðning við deildarstjóra og annað starfsfólk varðandi skipulag og útfærslu á námi og umönnun barna með sérþarfir
  • Veita ráðgjöf og stuðningu við kennslu í grunnskóladeild Þingeyjarskóla eftir þörfum hverju sinni
  • Hafa umsjón með gerð einstaklingsnámskráa, áætlana og aðlögun námsefnis í samvinnu við deildarstjóra og leikskólastjóra
  • Vinna að almennu uppeldi og menntun barna samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla

Menntunar og hæfniskröfur

  • Þroskaþjálfamenntun, sérkennaramenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og jákvætt viðmót í starfi með börnum
  • Stundvísi, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta til að geta átt í hnökralausum samskiptum við börnin og stutt við málþroska þeirra.
  • Reynsla af starfi í leikskóla æskileg
  • Hreint sakavottorð (fylgi umsókn)

Fríðindi í starfi

  • Heilsueflingarstyrkur Þingeyjarsveitar til starfsfólks sveitarfélagsins
  • Gott jóla- og páskafrí.
  • Styttri vinnuvika. 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar tveimur stundum vikulega sem nýttir eru sem frí t.d. í dymbilviku og milli jóla- og nýárs.
  • Sveitarfélagið hefur innleitt 4-5 skráningardaga á hverju starfsári sem gefur aukið svigrúm til undirbúnings og samráðs um vinnuna.

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu eða þroska-iðjuþjálfamenntun verða aðrar umsóknir skoðaðar.

Umsóknir og fylgigögn sendist til Nönnu Marteinsdóttur leikskólastjóra á netfangið: nanna@thingeyjarskoli.is, sem einnig veitir nánari upplýsingar um starfið í gegnum sama tölvupóstfang eða síma: 898-0790.

Getum við bætt efni þessarar síðu?