Fara í efni

Leikskólakennari í 70-100% starf við Stórutjarnaskóla

Stórutjarnaskóli auglýsir eftir leikskólakennara. Um er að ræða 70-100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi
  • Virk þátttaka í skólaþróunarstarfi, skráningu á námi barnanna og reglulegum teymis- og starfsmannafundum

Hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn) eða menntun sem nýtist í starfi
  • Áhugi á að vinna með börnum og metnað til að takast á við fjölbreytt verkefni
  • Góð íslenskukunnátta til að geta átt í hnökralausum samskiptum við börnin og stutt við málþroska þeirra
  • Reynsla af starfi í leikskóla æskileg
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna í teymi
  • Sveigjanleiki, jákvæðni, áreiðanleiki, stundvísi
  • Hreint sakavottorð (fylgi umsókn)

Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik- grunn- og tónlistarskóli með um 40 nemendur frá eins árs til 16 ára aldurs. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði. Skólinn er að innleiða Jákvæðan aga, er Grænfánaskóli og Heilsueflandi skóli. Lögð er áhersla á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólans og er skólinn í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni.

Umsóknarfrestur er til 1. júní 2026. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 14. ágúst.

Ef enginn fagmenntaður sækir um verða aðrar umsóknir skoðaðar.

Áhugasamir hvattir til að hafa samband í síma 4643220 eða í gegnum netfangið postur@storutjarnaskoli.is

Umsóknir skulu sendar á netfangið postur@storutjarnaskoli.is

Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi.

Getum við bætt efni þessarar síðu?