Fara í efni

Leikskólakennarar óskast á Barnaborg og Krílabæ

Leikskólinn Barnaborg í Aðaldal og Leikskólinn Krílabær á Laugum leita að áhugasömum kennurum í framtíðarstörf. Leikskólarnir eru hluti af Þingeyjarskóla, samreknum grunn- og leikskóla í Þingeyjarsveit. Í starfi skólanna er lögð áhersla á að hlúa að sjálfsprottnum leik barnanna, öruggum tengslum barna við umönnunaraðila og virðingu fyrir öllum í leikskólastarfinu. Sjá nánar á: www.thingeyjarskoli.is  

  • Um er að ræða 80-100% starf í hvorri starfsstöð fyrir sig.
  • Ráðið er í störfin frá 15. maí 2026 eða eftir samkomulagi.
  • Aðstoð veitt við að finna húsnæði í nágrenni skólanna.
  • Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.
  • Virk þátttaka í skólaþróunarstarfi, skráningu á námi barnanna og reglulegum teymis- og starfsmannafundum.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn) eða menntun sem nýtist í starfi.
  • Áhugi á að vinna með börnum og þróa öflugt leikskólastarf.
  • Góð íslenskukunnátta til að geta átt í hnökralausum samskiptum við börnin og stutt við málþroska þeirra.
  • Reynsla af starfi í leikskóla æskileg.
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna í teymi.
  • Sveigjanleiki, jákvæðni og áreiðanleiki.
  • Hreint sakavottorð (fylgi umsókn).

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu verða aðrar umsóknir skoðaðar.

Umsóknir og fylgigögn sendist til Nönnu Marteinsdóttur leikskólastjóra á netfangið: nanna@thingeyjarskoli.is sem einnig veitir nánari upplýsingar um starfið í gegnum sama tölvupóstfang eða síma: 898-0790.

Getum við bætt efni þessarar síðu?