Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar hses. auglýsir til umsóknar tvær íbúðir í almenna íbúðaleigukerfinu

Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar hses. - Almennar leiguíbúðir

Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar hses. auglýsir til umsóknar tvær íbúðir í almenna íbúðaleigukerfinu.

Um er að ræða þriggja herbergja íbúðir, um 80 m2 að stærð, við Melgötu 6a og 6b við Stórutjarnaskóla.

Íbúðirnar verða lausar 1. maí 2021.

Markmið Leiguíbúða Þingeyjarsveitar hses. með byggingu almennra íbúða er að bregðast við eftirspurn leiguhúsnæðis í sveitarfélaginu og um leið bæta húnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga sem eru undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. laga um almennar íbúðir við upphaf leigu. Um byggingu og útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016.

Umsækjandi þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

Uppfylla kröfur um tekjuviðmið skv. 10. gr. laga um almennar íbúðir nr. 52/2016.

Búa við ófullnægjandi húsnæðisaðstöðu eða öryggisleysi í húsnæðismálum.

Hafa ekki möguleika á að kaupa eigin húsnæði og/eða leigja á almennum leigumarkaði án sérstakrar aðstoðar.

Forgangsröðun

Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar hses. forgangsraðar umsóknum sem hér segir:

  1. Einstaklingur með barn/börn á sínu framfæri.
  2. Sambúðafólk með barn/börn á framfæri.
  3. Par í sambúð.
  4. Einstaklingur.

Tekju- og eignamörk

Árstekjur leigjenda almennra íbúða við upphaf leigu skulu ekki nema hærri fjárhæð en 6.420.000 kr. fyrir hvern einstakling en 8.988.000 kr. fyrir hjón og sambúðarfólk. Við þá fjárhæð bætast 1.605.000 kr. fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimlinu. Með tekjum er átt við allar tekjur samkv. II. kafla laga um tekjuskatt nr. 90/2003, samkvæmt skattframtali síðasta árs, staðfestu af ríkisskattstjóra, að teknu tilliti til frádráttar skv. 1.,3.,4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 30 gr. og frádráttar skv. 31. gr. sömu laga.

Samanlögð heildareign leigjenda almennra íbúða að frádregnum heildarskuldum við upphaf leigu, með vísan til 72. -75. gr. laga um tekjuskatt samkvæmt skattframtali síðasta árs staðfestu af ríkisskattstjóra, skal ekki nema hærri fjárhæð en 6.930.000 kr.

Umsóknarferli og úthlutun

Umsóknir um leigu almennra íbúða skulu berst rafrænt á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna má á heimasíðu Þingeyjarsveitar undir „Eyðublöð“. Með umsókn skal fylgja afrit af skattframtali síðasta árs og afrit af þremur síðustu launaseðlum umsækjanda.

Stjórn Leiguíbúða Þingeyjarsveitar hses. úthlutar íbúðunum eftir að farið hefur verið farið yfir allar umsóknir. Almennum íbúðum er úthlutað samkvæmt forgangsröðun Leiguíbúða Þingeyjarsveitar hses. og á grundvelli sérstakrar stigagjafar.

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl.

Rafrænt umsóknareyðublað er að finna hér

Fyrirspurnir berist til sveitarstjóra á netfangið dagbjort@thingeyjarsveit.is eða í síma 464 3322