Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar hses. - lyklar afhentir af fyrstu íbúð

Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar hses. afhentu s.l. miðvikudag fyrsta leigjandanum lykla að nýrri íbúð við Melgötu 6a í Ljósavatnsskarði. Leigjandinn Unnur Gunnarsdóttir var að vonum ánægð með að komast í nýja íbúð með dætur sínar tvær og munu þær nota næstu daga til að koma sér fyrir. Helga Sveinbjörnsdóttir, byggingarfulltrúi afhenti lyklana fyrir hönd Leiguíbúða Þingeyjarsveitar hses.

Parhúsíbúðirnar við Melgötu 6a og 6b eru Svansvottaðar og eru hvor um sig 80 m2 með tveimur svefnherbergjum, eldhúsi og stofu í sama rými, forstofu og geymslu. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með. FaktaBygg Ísland ehf. sá um framkvæmdina fyrir Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar hses. og eru íbúðirnar nú tilbúnar til útleigu en lóðafrágangi lýkur í sumar.

Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar hses. áforma að byggja samskonar parhús við Víðigerði í Aðaldal og kaupa tvær 67 m2 íbúðir í nýbyggingu sem verður reist á Lautavegi á Laugum í sumar. Samtals verða þetta því sex íbúðir til útleigu á vegum félagsins sem er hrein viðbót leiguíbúða í sveitarfélaginu.