Laus störf við félagsstarf eldri borgara í Þingeyjarsveit
Laus til umsóknar eru tvö 20 – 25% störf í umsjón með félagsstarfi eldri borgara einu sinni í viku í vetur. Um er að ræða skipulag, undirbúning og umsjón á samverustundum eldri borgara í Þingeyjarsveit. Samverustundir eldri borgara í Þingeyjarsveit eru tvisvar í viku, annars vegar í Mývatnssveit og hins vegar til skiptis í Þingeyjarskóla og Stórutjarnaskóla.
Störfin henta öllum kynjum og eru áhugasamir einstaklingar hvattir til að sækja um, óháð kyni.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Allar frekari upplýsingar veitir verkefnastjóri æskulýðs- tómstunda- og menningarmála, Gunnhildur Hinriksdóttir á netfangið gunnhildur@thingeyjarsveit.is
Umsóknarfrestur er til 23. ágúst 2026. Skila skal umsóknum á skrifstofu Þingeyjarsveitar, eða á netfangið umsoknir@thingeyjarsveit.is