Laus störf í Barnaborg - leikskóladeild Þingeyjarskóla

Viltu koma og vinna með frábærum nemendum og skemmtilegu starfsfólki? Þá ættirðu að íhuga starf hjá okkur í Þingeyjarskóla.

Okkar vantar:
- Leikskólakennara við leikskóladeildina Barnaborg í 100% starf
- Stuðningsfulltrúa/leikskólastarfskraft við leikskóladeildina Barnaborg í 100% starf

Störfin eru laus frá og með 1. janúar

Við leitum að starfsfólki sem:
+ Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
+ Er lausnamiðað
+ Er sveigjanlegt og með góða samskiptahæfni
+ Er sjálfstætt í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði
+ Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni
+ Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu
+ Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum Barnaborg og Krílabæ. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra. Rík tónlistarhefð er við skólann.

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til 28. desember.
Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is