Kynningarfundur um fjölþætta heilsueflingu 60+
12.08.2026
Þriðjudaginn 25. ágúst, kl. 17:00 verður kynningarfundur um fjölþætta heilsueflingu í Þingeyjarsveit í Félagsheimilinu á Breiðumýri í Reykjadal.
Á fundinum heldur Janus Guðlaugsson erindi um hvernig við getum stuðlað að betri heilsu og auknum lífsgæðum með hækkandi aldri. Þar fer hann yfir hvað rannsóknir segja okkur um mikilvægustu þætti heilsueflingar, hverju við þurfum sérstaklega að huga að þegar við eldumst og hvaða áhrif hreyfing, styrkur og heilbrigðar lífsvenjur geta haft.
Janus hefur í gegnum áralanga rannsóknarvinnu og starf á sviði heilsueflingar öðlast mikla innsýn í þessa þætti og mun miðla af þeirri þekkingu á aðgengilegan og hagnýtan hátt.
Allir eru hjartanlega velkomnir og þátttaka er ókeypis.
Á fundinum færðu að:
- Kynnast aðferðafræði sem hefur hjálpað þúsundum einstaklinga að bæta heilsu sína og ná árangri.
- Sjá hvernig heilsufarsmælingar og persónuleg nálgun eru nýttar til að styðja við markvissa heilsueflingu.
- Heyra frá fagfólki með áralanga reynslu af heilsueflingu, þjálfun og ráðgjöf.
- Kynnast öðrum sem vilja setja heilsuna í forgang – á sínum eigin forsendum.
Hvort sem þú ert þegar farin(n) að huga meira að heilsunni eða langar einfaldlega að kynna þér hvað stendur til, hvetjum við þig til að mæta.
HÉR má skoða viðburðinn á Facebook.