Kynningarfundur um fjárhagsáætlun 2024-2027

Kynningarfundur um fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar 2024 - 2027 verður haldinn í fjarfundi þriðjudaginn 30. janúar nk. kl. 17:00.

Hægt er að skrá sig til þátttöku á fundinum á netfanginu skrifstofa@thingeyjarsveit.is eða gegnum þennan tengil.

Skráðir þátttakendur fá sent boð á fundinn með tölvupósti. Opið verður fyrir fyrirspurnir á spjallþræði fundarins og í umræðum eftir kynninguna.

 

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri.